17.3.2007 | 20:28
Hvar liggur vandinn?
"Þeir segja að vegfarendur séu ólíklegir til þess aðstoða sjúkan einstakling þurfi þeir að beita munn við munn aðferðinni."
Ef þetta er raunin, þá spyr ég: "Hvar liggur vandinn?"
Ef fólk er ekki tilbúið til að framkvæma eitthvað sem það á einhvern óskiljanlegan hátt tengir hugsanlega við kynlíf til að bjarga mannslífi, þá held ég að lausn vandans felist ekki í því að koma fólki hjá því að þurfa að gera það, heldur að laga þetta viðhorf, laga þessa vanvirðingu fyrir mannslífinu.
Læknar hvetja til þess að hætt verði að beita munn við munn aðferðinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.3.2007 | 16:58
Er þetta ekki grín?
Síðan býst ég við að Bandaríkin ráðist inn í Íran á næstunni (þeir eru víst meiraðsegja komnir með vísun í kjarnorku í seðlana sína), eða fari jafnvel að endurnýja sitt kjarnorkuvopnabúr. Síðan verður Rússland líklega ekki lengi, jafnvel Japan, Kórea í kjölfarið þar sem allir verða hættir að fylgjast með ...
Þriðja heimstyrjöldin anyone?
Annars rakst ég á texta í sögubókinni minni sem einhver hafði skrifað til að lýsa ástandinu og almennum hugmyndum fólks um sjálft sig rétt áður en fyrsta heimstyrjöldin braust út, og mér varð ekki hugsað til annars en hvað þetta minnti mikið á ástandið í dag.
Rætt um að endurnýja kjarnorkuvopnabúr Bretlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.3.2007 | 00:21
Vankunnátta í reikningi eða ruglingur á hugtökum?
Þetta er vitleysa. Hún hefur aukist um 136 prósentustig frá því í janúar, en 8,5%.
Þetta er ansi hættulegur ruglingur. Ef hún hefði aukist um 136% væri hún 3761,84%, en þarna munar talsvert miklu.
Verðbólgan mælist 1.730% í Zimbabwe | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.3.2007 | 20:28
Góði kallinn...
Okkur er annt um nágranna okkar, sagði Bush, og ég held að Bandaríkjunum sé ekki talið nægilega til tekna sú viðleitni sem þau hafa sýnt í að bæta líf annarra.
HAHAHAHAHAHAHAHHAHAHAHAHAHAHA
Gott efni í stand-up keppnina sem pólítík virðist stundum vera.
Bush hafnar ásökunum um að Bandaríkjamenn hunsi Rómönsku Ameríku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.3.2007 | 23:32
Að þeir skuli leyfa sér þetta!
Ég vona að enginn falli fyrir þessum bellibrögðum bankanna.
Af hverju ætti maður að vilja bíða með að borga af höfuðstólnum? Til að eyða peningunum sínum?
Síðan markaðssetja þeir þetta fyrir námsmenn.. gvuð minn almáttugur.
Kaupþing auglýsir ný íbúðalán á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.3.2007 | 22:05
Snillingur
Svona á að gera þetta! Þessi úrsmiður er snillingur og á hrós skilið fyrir skjót og góð viðbrögð.
Klikkað lið þarna úti, vá maður. :-p
Viðskotaillum úrsmið sleppt úr haldi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.2.2007 | 18:40
En hvað með samkynhneigð?
Þetta er eitthvað sem mig hafði grunað, enda eins og segir í fréttinni þá gera nokkrar mikilvægustu
kenningar þróunarlíffræði ráð fyrir þessu.
En hvað með samkynhneigð? Er ekki einhver svipuð 'fúnksjón' sem kemur í veg fyrir að maður laðist kynferðislega að fólki af sama kyni þar sem það er ekki æskilegt, enda getur það varla af sér afkvæmi.
Vissulega koma fram einstaklingar þar sem þessi 'fúnksjón' er ekki til staðar, það er alveg eðlilegt eins og hvert annað vik frá 'eðlileikanum', og það er forsenda þróunar.
Svipuð fúnksjón væri þá líka til að koma í veg fyrir að maður laðaðist kynferðislega að börnum (þar miða ég 'barn' við einstakling sem er ekki á seinni hluta kynþroska áranna, eða yngri).
Annars vil ég bara taka það fram að ég hef ekkert á móti samkynhneigðum, enda eru þeir ekki að skaða neinn með sinni kynhneigð neitt frekar en gagnkynhneigt fólk. Þetta er einungis hugsað sem vangavelta en ekki til að ýta undir mismunun eða fordóma gegn einhverjum sem brýtur ekki á frelsi annara.
Kv. W
Andúð á sifjaspellum ekki einungis samfélagsleg | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.2.2007 | 18:57
Mótmæli?
Mikið hlakka ég til að fá að fylgjast með öfga-kvenréttindavinum okkar allra mótmæla frelsi klámleikaranna.
Það er ekki annað hægt en að elska þetta lið.
Klámþing verður haldið hér á landi í næsta mánuði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.2.2007 | 13:10
Málfar?
Undarlegt nokk.
Baader-Meinhof meðlimi veitt reynslulausn eftir 24 ár á bak við lás og slá | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.2.2007 | 12:34
Bónuspoki
Ansi flottur þarna með bónuspokann! :P
En þetta er kjánalegt mál. Ég hélt að það væri löngu búið.
Jón Ásgeir yfirheyrður næstu þrjá daga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)