Samræmd próf og unglingadrykkja!

Nei nú er mér öllum lokið.
Ég gef mér að ástæðan sé jú hin alræmda unglingadrykkja sem fæstir þora að viðurkenna, og út frá því grunar mig að umrædd ákvörðun sé tekin til að sporna við henni.
Eða hvað? Í menntaskólum eru böll og dansleikir gjarnan á fimmtudögum, ég hef ekki séð að það dragi eitthvað úr drykkju  (fólk sefur hvorteðer  í tímum, já ef það mætir) . Það var nú frétt um það um daginn að mikil ölvun hafi verið í Reykjavík í tengslum við tvö böll sem voru samtímis, á vegum jafn margra skóla.

Er þetta einhver lausn? Krakkarnir drekka þá bara bæði á fimmtudaginn (halda upp á próflok) OG föstudaginn (FLÖSKUDAGUR!) ef eitthvað er.
Ég held að málið sé að sumt fólk sé svo blint fyrir vandamálunum að þegar kemur að því að leysa þau sér það ekki skóginn fyrir trjám og setur upp boð og bönn og jafnvel einhverjar svona kjánalegar breytingar sem skila engu (nema kannski því gagnstæða).

Léleg ákvörðun að mínu mati, og ég er ekki frá því að mitt mat sé  nokkuð gott því ég þekki þetta "first hand".

 

Kv. W 


mbl.is Dagsetningu samræmda prófa vorið 2008 breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mjög góður punktur

menntskælingur (IP-tala skráð) 6.2.2007 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband