Færsluflokkur: Dægurmál

Þetta er allavega góð hugmynd

Mér finnst þetta alveg frábær hugmynd, hvort sem hún virkar strax eða ekki.

Hvort sem það er viljandi eða ekki, þá er það snilldar markaðssetning að hver 'kassi' dugi svona stutt. 


mbl.is Þrír félagar telja sig hafa leyst gróðurhúsavandann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað með það?

Hvern skaðaði hún með sínum reykingum? Hvað kemur það okkur við hvað hún hefur gert í sínu einkalífi?

Er þetta ekki bara til marks um úreltan hugsunarhátt? 


mbl.is Smith: „Ég reykti kannabis"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá verður lítið að gera hjá mér í vinnunni :-/

Oftast er allt brjálað í Júní og Júlí, en núna verður það eitthvað slappt.

- vinn hjá hlaðbæ colas. 


mbl.is Malbikunarefni að verða uppurið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höggmynd???

Af hverju stendur að þetta sé höggmynd?

Annars finnst mér þetta illa gert og frekar mikið undir beltisstað, nema þetta sé kannski einhver dýpri pæling á bakvið þetta. Skemmdarverk eru almennt leiðinleg.


mbl.is Málningu hellt yfir Litlu hafmeyjuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Maður deilir ekki við tölfræðina!

Tölfræði er alveg ótrúlega fyndin fræði og oft mjög auðvelt að setja hlutina þannig upp að þeir séu eins og manni hentar. Ekki það að ég sé að segja að hérna sé það tilfellið, en það er bara mikilvægt að éta sambærilegar 'fréttir' ekki hráar.
mbl.is Farþegaflug aldrei verið öruggara en nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta grunaði mig nú!

Hahaha! Þeir hringdu í mig og voru eitthvað að spyrja ótrúlega laumulegra spurninga. T.d. "Ertu ekki annars bara jákvæður?"

Vaaaaááá, lélegt af þeim. (þó þetta sé svosem alveg *skiljanlegt*... samt lélegt) 


mbl.is Upplýsingaöflun starfsmanna Alcan enn til athugunar hjá Persónuvernd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættan við trú!

Þetta er enn eitt dæmið um hvað það getur verið hættulegt að trúa. Ég er ekki að segja að það sé rangt við að færa þessu fólki einhversskonar von (hún er reyndar líklegast fölsk í þessu tilfelli), en þegar fólk leitar frekar til lækningaraðferða sem virka ekki í staðinn fyrir að fá alvöru lækningu er voðinn vís.
Þetta fólk á kannski ekkert von á lækningu hvorteðer, þannig að þetta er reyndar ekki 'clean-cut' mál.
mbl.is Trúa því að fjallalækur geri meira gagn en lyf gegn HIV-veirunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir skrifa svona???

"Í lokaræðu sinni sagði saksóknari mennina ekki eiga neina miskinn skilda"

Hvað er eiginlega í gangi? "miskinn skilda"?
Er Íslenskan í alvörunni farin að rýrna svo mikið að ekki einusinni fréttamiðlar geta verið með svo mikið sem viðunandi málfar í fréttum sínum?


mbl.is Dauðarefsingar krafist yfir Eiturefna-Ali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blogg hvað?

http://imgs.xkcd.com/comics/dreams.png

 Ég segi ekki meira.


mbl.is Bloggið gæti spillt fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hélt hann myndi grafa sig upp sjálfur.

Var það ekki annars pælingin? :P

mbl.is Hugsanlegt að Houdini verði grafinn upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband